Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008
31.12.2008 | 14:55
Ekki þjóðin, ekki lýðræði, bara ofbeldi
Ofbeldishneigt fólk fékk í dag útrás með því að eyðileggja eignir Stöðvar 2 og Hótel Borgar. Í fjárhagskreppu sér fólk af þessu tagi ekki annað ákjósanlegra en að auka á vanda samfélagsins með skemmdarverkum. Einnig hindruðu þeir lýðræðislega umræðu og þá von okkar hinna að fá upplýsingar um hvað er á döfinni og hvernig verður unnið eftir þau uppgjör sem fara fram hjá a.m.k. tveimur stjórnmálaflokkum í janúar.
Minna má á að margir hafa reynt að leysa þjóðfélagsvanda með ofbeldi víða um heim. Það hefur ekki virkað. Friðsamleg mótmæli hafa hinsvegar skilað árangri.
Þessi mótmæli nú eiga ekkert skylt við friðsamleg mótmæli undanfarið og ég frábið mér að grímuklæddir ofbeldismenn kenni sig við íslenska þjóð. Þeir eru einungis ofbeldishneigðir einstaklingar. Punktur og basta.
Beitti piparúða á mótmælendur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.12.2008 | 12:23
Frelsi:= Eignir_þjóðar + Lán_þjóðarábyrg + Einkagróði
Frelsi hefur einhvernvegin misst gildi sitt í orðabókinni minni. Einkaframtakið sem átti að vera svo miklu betur í stakk búið til að stunda rekstur en þjóðin hefur fengið frelsi til að athafna sig svo um munar. Sumir fengu eignir þjóðarinnar, banka, fisk og margt fleira. Síðan gátu þeir tekið lán og gert þjóðina ábyrga fyrir þeim. Einkagróðann fengu þeir í eigin vasa og borguðu lægri skatta af honum en alþýða manna með eigin vinnu. Rökin, jú þá myndu þeir búa til meiri vinnu fyrir fólk sem borgaði síðan hærri skatta.
Í mínum huga þá virðist það eina sem var einkavætt væri gróði sem varð til eftir handónýtum leikreglum hagfræði sem hefur beðið skipbrot. Þegar á reyndi þá var þjóðin meira og minna ábyrg fyrir skuldunum, missti eignirnar, græddi lítið og tapaði miklu.
Einkaframtakið fór harla illa með frelsi sitt og hefur hneppt þjóðina í ánauð. Þetta er líklega frelsi einstaklingsins til að setja þjóðina í ánauð. Er það frelsi? Hver varð frjáls? Það eina sem var í raun einkavætt var tímabundinn gróði í vasa fárra einstaklinga.
Ríkið hluthafi í verslunarkeðjum? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.12.2008 | 12:57
Nafli alheimsins???
Við erum útkjálki, það þarf ekki haukfráa sjón til að sjá það á landakorti. Sá mikli misskilningur að við séum nafli alheimsins af því við séum ekki í samstarfi við aðra er pólitísk blinda. Við erum ekki einu sinni útkjálki í dag, við erum einfaldlega eyja í miðju úthafi sem rekum stjórnlaust án þess að vita hvar við náum landi þegar upp er staðið. Sú sýn sem menn eru að reyna að selja íslenskri þjóð að við séum nafli alheimsins er fáránleg, við höfum siglt þessu landi í strand á kletti í úthafi án þess að geta miklar bjargir okkur veitt án þess að leita á náðir annarra þjóða.
Það er undir okkur sjálfum komið hver áhrif við höfum í samfélagi annarra þjóða og hver áhrif okkar verða innan Evrópusambandsins. Áhrif okkar utan félagasamtaka þjóða eru hinsvegar engin eftir að við urðum fjárhagslega bjargarlaus. Fiskurinn virðist ekki ætla að verða björgunarhringur og ekki álið. Ég hef hinsvegar þá bjargföstu trú að Íslendingar geti vel látið í sér heyra og haft áhrif innan Evrópusambandsins þó svo að Styrmir Gunnarsson hafi það ekki. En ef hann hefur ekki trú á okkur innan Evrópusambandsins af hverju í ósköpunum hefur hann þá trú á okkur utan þess þar sem við höfum enga samstarfsmenn heldur göngum um með betlistaf?
Hvað svo sem Styrmir Gunnarsson hrópar á hól, þá erum við ekki nafli alheimsins og verðum það ekki hvort sem við erum innan eða utan Evrópusambandsins.
Ísland áhrifalaus útkjálki? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.12.2008 | 19:39
Eðlileg ákvörðun
Það er mjög eðlileg ákvörðun hjá Geir Haarde að skipta ekki um í ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins fyrir landsfund í janúar. Á þeim fundi geta flokksmenn kjörið nýja forystu og þrátt fyrir að ekki virðist líklegt að skipt verði um formann þá er þó óeðlilegt að formaður sem veit að hann er í kjöri innan skamms sé að gera breytingar stuttu á undan.
Á landsfundinum kemur í ljós hver viðhorf Sjálfstæðismanna eru til forystu sinnar og í kjölfarið er því hægt að grípa til ráðstafana eða breytinga ef ástæða þykir til. Vonandi verða tímamót hjá flokknum hvað varðar umræðu um Evrópusambandið og flokkurinn í fyrsta skipti tilbúinn til þess að sjá hvað í slíkri aðild felst í raun og veru í stað þess að vera með getgátur og spádóma. Það er löngu kominn tími til að landsmenn sjái það svart á hvítu í stað þess að hafa menn sem telja sig vita hvað er þjóðinni fyrir bestu án þess að kanna það raunverulega.
Það verður spennandi að sjá hverju fram vindur.
Geir: Engar ráðherrabreytingar fyrirhugaðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.12.2008 | 16:51
Lýsir eigin tilfinningum
Sif Friðleifsdóttir þekkir vel til stjórnarsamstarfs við Sjálfstæðisflokkinn og því ekki ólíklegt að sá flokkur hafi oft upplifað hnefa sem líklega var þá ekki úr stáli heldur blár. Líklegt má þá telja að Framsóknarflokkurinn hafi verið skjálfandi á beinunum.
Ég fyrir mitt leyti upplifi Sjálfstæðisflokkinn ekkert skjálfandi heldur einfaldlega að koma sér að verki sem þeir áttu fyrir löngu að vera búnir að. Pressan kom innan þeirra eigin flokks en kannsk hefði hún ekki komist upp á yfirborðið nema vegna þess að flokkurinn er í samstarfi með Samfylkingunni. Samfylkingin hefur skýra stefnu um að fara í aðildarviðræður og taka ákvörðun byggða á staðreyndum en ekki byggt á spádómsgáfum og tilfinningum eins og aðrir hafa yfirleitt gert.
En ég tek að öðru leyti undir hróp þingmanna úr sal sem spurði "hvað viltu sjálf"? Væri ekki ráð fyrir Sif Friðleifsdóttur að ræða í þingsal hvað menn vilja gera í stað þess að vera með eigin fréttaskýringar á öðru fólki og öðrum flokkum. Framsóknarflokkurinn þarf virkilega á því að halda að standa klár á því sem hann sjálfur vill.
Formaðurinn með stálhnefann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.12.2008 | 13:42
Ábyrgð en ekki upplýsingar
Stjórnvöld í Lúxemborg veiti upplýsingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.12.2008 | 21:07
Grímuklædd?
Það er óhugnanlegt að sjá fólk á myndbandinu hylja andlit sín grímum og hrópa ógnandi. Við erum ekki vön grímuklæddu fólki nema úr ránum eða öðrum afbrotum enda virtist mér þetta varla mótmæli í lýðræðislegu samfélagi heldur ógn við Alþingi og lýðræðislega kjörið fólk sem þar situr. Ég verð að viðurkenna að ég hefði frekar viljað fá fréttir af umræðum um Icesafe málið sem Sif var að reyna að hefja enda meiri þörf á því og öllu lýðræðislegra.
Nú hafa menn séð skipt um stjórn Reykjavíkurborgar nokkrum sinnum þetta kjörtímabil og ef til vill eigum við eftir að sjá slík skipti á Alþingi. Ég verð þó að viðurkenna að ég vildi frekar sjá stjórnendur landsins takast á við verkefnin eins og staðan er. En það er ekkert óeðlilegt að kjósa um leið og menn geta sett fram markmið að lausnum sem hægt væri að kjósa um. Við erum ekki komin þangað ennþá.
Siv: Vildi helst hlaupa í felur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.12.2008 | 18:00
Hvers konar traust?
Hverju treystum við þegar spurt er um traust á fjölmiðlum? Er það traust hvort þeir séu að segja frá einhverju sem raunverulega gerðist eða er það traust á því hvernig þeir segja frá? Er það spurningin um að treysta því að rétt aðalatriði séu dregin fram? Hvers konar traust? Ef við skoðum t.d. umfjöllun um mótmælafund í Reykjavík í dag draga fjölmiðlarnir eftirfarandi fram:
mbl.is: "Ábyrgðin er ekki okkar"
RÚV: "Mótmælt 9. laugardaginn í röð"
visir.is: "Færri mótmæla á Austurvelli"
Áherslupunktarnir eru misjafnir. Morgunblaðið telur fyrirsögnina felast í fullyrðingu Gerðar Kristnýjar að Íslendingar beri almennt ekki ábyrgð heldur ráðamenn þjóðarinnar. RÚV dregur fram hversu oft er mótmælt en visir.is að nú séu færri sem mótmæla. Ef menn skanna bara fyrirsagnir þá fjallar mbl.is um innihald en hinir tveir miðlarnir um megindlegar upplýsingar um fundina, hversu oft þeir hafa verið haldnir og hversu margri sækja þá m.v. það sem áður er.
Ég hefði viljað sjá hverju menn svara ef þeir eru spurðir hvort fjölmiðill túlki atburði eftir mismunandi pólitískum skoðunum. Eftir hvaða skoðunum þá?
Treysta mbl.is best netmiðla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2008 | 14:07
Uppsagnarbréf
Hér með segi ég undirrituð upp þeim stöðugu áhyggjum sem ég hef haft af fjármálum mínum og Íslands. Ég segi upp reiði yfir því sem hefur gerst, vondum hugsunum og áfellisdómum.
Á sama tíma hef ég ráðið mig í vinnu við að finna lausnir, auka gleði mína, efla góðar hugsanir. Með því einu tel ég að bæði ég og landið mitt geti vænst þess að við náum árangri. Ég mun vinna við það sem ég ræð við og treysta því að fagleg skoðun á vanda þjóðarinnar leiði í ljós hvers vegna hann er.
1.12.2008 | 11:39
Nákvæmlega!
Fyrir mér felast engir möguleikar í rifrildi, þrasi og dómsdagsumræðum. Í upphafi ástandsins trúði ég að Íslendingar myndu snúa bökum saman og vinna af sínum alþekkta dugnaði að lausn mála. En smá saman er ég að verða svartsýnni á að menn ætli sér að byggja upp sem ég held að muni auka fólksflóttann frá landinu gífurlega. Menn einblína á vandann, leita sökudólga og fátt vekur vonir. Dómstólar dæma sökudólga mannfjöldi hefur aldrei verið flinkur við það.
Ég vona að þetta breytist því annars verður vandi okkar miklum mun stærri heldur en hann er.
Íslendingar einblína á vandann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Október 2009
- September 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Jónsson
- Andrés Magnússon
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Matthíasson
- Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
- Baldur Kristjánsson
- Benedikt Sigurðarson
- Bergur Þorri Benjamínsson
- Bjarni Harðarson
- Bleika Eldingin
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Bwahahaha...
- Daði Einarsson
- Dagbjört Hákonardóttir
- Dagbjört Pálsdóttir
- Davíð Jóhannsson
- Dofri Hermannsson
- Dögg Pálsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Helgason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Sveinbjörnsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyþór Árnason
- Eyþór Ingi Jónsson
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Femínistinn
- Finnur Jóhannsson Malmquist
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Gísli Steinar Jóhannesson
- Gísli Tryggvason
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðríður Arnardóttir
- Gunnar Freyr Steinsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gunnsteinn Þórisson
- Gúrúinn
- Hallgrímur Óli Helgason
- Hallur Guðmundsson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Nikulásson
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Helgi Hrafn Halldórsson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Hermann Óskarsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hörður Jónasson
- Ibba Sig.
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga Sig
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Íslandshreyfingin - lifandi land
- Jens Sigurðsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhann Jónsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Jón Svavarsson
- Jón Þór Ólafsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Karl V. Matthíasson
- Kári Harðarson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- kona
- Kristbjörg Sigurðardóttir
- Kristján L. Möller
- Kristján Logason
- Magnús Már Guðmundsson
- Margrét Sverrisdóttir
- Matthías Björnsson
- Morgunblaðið
- Móðir, kona, sporðdreki:)
- Nýkratar
- Orðið á götunni
- Ólöf Nordal
- Ómar Ragnarsson
- Páll Einarsson
- Páll Jóhannesson
- Pálmi Guðmundsson
- Pálmi Gunnarsson
- Perla
- Pétur Björgvin
- Pétur Gunnarsson
- Pollurinn
- Púkinn
- Ragnar Geir Brynjólfsson
- Reynir Antonsson
- Rósa Harðardóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Sigmar Guðmundsson
- Sigurður Axel Hannesson
- Sigurður Kaiser
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Valur Sigurðsson
- Sindri Kristjánsson
- Skapti Hallgrímsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Þórsson
- Stjórnmál
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sverrir Páll Erlendsson
- Sölmundur Karl Pálsson
- Tíðarandinn.is
- Toshiki Toma
- Trúnó
- Valdís Anna Jónsdóttir
- Valgerður Halldórsdóttir
- Vefritid
- Vika símenntunar
- Vilborg Traustadóttir
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Egilson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórhildur Helga Þorleifsdóttir
- Þórir Kjartansson
- Örlygur Hnefill Örlygsson
RSS-straumar
Heimasíða Láru
Hér birtist listi yfir færslur á heimasíðunni minni.
Heimasíðan mín
- Augnablik - sæki gögn...