Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008
26.11.2008 | 15:36
Dómstóll götunnar
Þessi lífsreynsla er hræðileg fyrir þennan dreng. Þessa dagana eru menn dæmdir af alþýðu manna og má af þessu máli sjá hverjar afleiðingarnar eru. Saklaust fólk geldur fyrir það sem það kom hvergi nærri. Vonandi sjá menn hversu stórhættulegt það er að haga sér með þessum hætti og nauðsynlegt að dómstólar sjái um refsingar og úrræði. Dómstóll götunnar dæmir ekki endilega rétt.
Grímuklæddir menn sitja um heimili hjá saklausum pilti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.11.2008 | 09:58
500 þúsund manns!
Það má margt segja um þessa frétt en mig langar að gera að umræðuefni vinnuframlag landsmanna og þess sem Max Keiser segir: "Íslendingar eru evrópskt land með bandarískan vinnumarkað". Eftir þessu að dæma þá má leysa töluvert mikið atvinnuleysi með því að menn vinni einungis eina vinnu og einnig væri kostur að menn gætu notið meiri tíma með fjölskyldu sinni og vinum.
Eins vel og þetta hljómar þá er vandi okkar sá að við þurfum að greiða lán sem hækka stöðugt og því dugar varla ein vinna fyrir marga. Það hlýtur að vera freistandi fyrir marga að sækja sér vinnu í öðrum löndum þar sem launin eru e.t.v. í sama gjaldmiðli og lánið sem er verið að greiða.
Eins og staðan er þá eru lán heimilanna óviðráðanleg fyrir mjög marga og í óviðráðanlegri stöðu er fátt eitt hægt að gera annað en vinna meira. Það er nauðsynlegt fyrir okkur að hafa yfirsýn yfir hversu margir eru í þessari stöðu og hvernig er hægt að bregðast við því. Þeir sem geta ekki og munu ekki geta staðið í skilum þurfa að fá fyrirgreiðslu því það er töluverður munur á að standa eignalaus uppi en að standa uppi eignalaus með svo miklar skuldir að þær verða aldrei greiddar.
Ég hef ekki djúpstæða þekkingu á lagaumhverfi gjaldþrota en tel að í núverandi ástandi þurfi að skoða hvort ekki þurfi tímabundið að vinna á annan hátt með gjaldþrot en gert hefur verið hingað til.
Trúðu á kraftaverkahagkerfið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.11.2008 | 22:45
Reykjavíkurfundur orðinn þjóðin?
Menn eru nokkuð brattir að lýsa því yfir að þeir séu þjóðin og viti nákvæmlega hvað þjóðin vill. Hvaða yfirlýsingargleði er þetta? Svo lýsa þeir yfir því að þingið starfi ekki í nafni lýðræðis en telja sig sjálfa gta tekið sér slíkt vald. Ég kaus þetta fólk ekki í lýðræðislegum kosningum til að vera fulltrúa fyrir mig á bíófundi í Reykjavík. Ég tók þó þátt í að kjósa til Alþingis þó ég kysi ekki alla flokka eða í öllum kjördæmum.
Það er glórulaust að fara í kosningar núna, þar með fáum við ekki lánafyrirgreiðslu frá IMF, ekki verður hægt að koma málum í réttan farveg og þar með verður öll sú vinna sem þó hefur farið fram handónýt. Ég má ekki til þess hugsa. Nauðsynlegt er að sýna skynsemi þó tímarnir séu erfiðir.
Svo frábið ég mér að æst fólk á borgarafundum taki sér þann rétt að lýsa því yfir að þeir tali fyrir þjóðina. Þeir hafa ekkert umboð til þess. Þeir endurspegla sína skoðun og margir aðrir geta haft sömu skoðun sem er annað mál.
Þetta er þjóðin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
24.11.2008 | 11:19
Þekkingarauður
Miklir möguleikar felast í endurnýjanlegri orku á Íslandi sem hægt er að nýta til uppbyggingar í landinu á jákvæðan hátt. Sérþekking íslenskra vísindamanna er þekkingarauður sem hægt er að veita öðrum þjóðum sem hingað til hafa ekki nýtt jarðhita á sama hátt og við höfum gert. Þekkingareign er ekki nægilega skilgreind sem verðmæti og hér á landi hefur skort reynslu og þekkingu á að selja ráðgjöf og þekkingarþjónustu. Við erum vanari sölu á innpökkuðum varningi en því að selja það sem við vitum.
Ég tel að það sé gríðarlega eftirsóknarvert verkefni að skrá þekkingarauðinn í ríkari mæli og búa hann til útflutnings t.d. í stað þess að fólk flytji úr landi með þá þekkingu sem það hefur.
Nokkuð hefur borið á einhæfri umræðu þegar kemur að endurnýjanlegum orkugjöfum eins og jarðhitaorku. Slíkt stafar e.t.v. af því að ekki hafa boðist nægilega fjölbreyttir kostir til að nýta orkuna. En það er mikilvægt að hafa augun opin fyrir slíku.
Íslensk orka í brennidepli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.11.2008 | 01:29
Öflug ræða Ingibjargar Sólrúnar
Augljóst var á flokksstjórnarfundi í dag að formaður Samfylkingarinnar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er vön að standa við stjórnvölinn og missir ekki fókus þó tímar séu erfiðir. Hún hefur þann undraverða hæfileika að geta horft markvisst á þau verkefni sem þarf að vinna að og lætur ekki úlfaþyt þeyta sér af leið.
Stundum finnst mér eins og menn horfi á þann vanda sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir sem tölvuleik og þeir vilji bara ýta á takka til að komast í næsta borð eða endurræsa leikinn og allt sem þar hafði gerst hverfi snarlega og allt verði eins og fyrr. Sumir telja að það gerist með kosningum, aðrir með því að skipta um fólk og þá á að gerast einhver hókus pókus og ekkert hefur gerst.
Það þarf sterk bein og einarðan vilja til að vinna þau verkefni sem þjóðin þarf á að halda. Hafa yfirsýn yfir fjölmarga málaflokka til þess að taka tillit til fjölþættra verkefna því lífið er ekki svo einfalt að eitthvað eitt hjálpi öllum. Við þá vinnu er mikilvægt að þeir sem vilja berjast fyrir jöfnuði í samfélaginu séu við stjórnvölinn.
Ég veit að með Ingibjörgu Sólrúnu við forystu fyrir liði Samfylkingarinnar í ríkisstjórn verður allt gert til að vinna eins vel úr hlutunum og mögulegt er sem gerir það að verkum að þrátt fyrir að tímar séu erfiðir þá veit ég að það er gott fólk úr liði okkar í Samfylkingunni sem mun gera allt sem mögulegt er í þeirri stöðu sem við erum í.
Það er enginn valkostur í lífinu að gefast upp.
Áfallastjórnuninni lokið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.11.2008 | 12:57
Vinur minn - sperrileggurinn
Ég þekki ekki glögglega til deilna framsóknarmanna en orðfærið og aðferðirnar eru ólíkar aðferðum margra annarra. Þeir ráðast ekki fram með sóðakjöftum og gífuryrðum heldur takast á með fangbrögðum orða sem minna helst á gamla góða glímu. Þeir taka "stigið", kalla hver annan vin og beita síðan öllum ráðum að fella hinn með orðræðu um hver er sannari framsóknarmaður.
Sperrileggur er frábært orð sem ég hef ekki séð brúkað lengi og gaman að sjá það í fangbrögðum stjórnmálamanna.
Bjarni móðgar framsóknarmenn" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2008 | 18:33
Hvað eru margir Herðir í Suðurkjördæmi?
Eygló næst á lista | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2008 | 10:34
Spámaðurinn Steingrímur
Það er varla viðtal við Steingrím J. Sigfússon þessa dagana öðruvísi en hann ítreki að hann hafi sagt hlutina fyrir. Ég velti fyrir mér hvort það þurfi ekki að fara að taka saman hvað þessi glöggi spámaður segir og biðja hann að spá fyrir 2009 í heildina?
Annars væri fróðlegt að heyra hvað annað hann hefur um þetta mál að segja en tjá vondar tilfinningar og eldri spádóma. Taldi hann að ekki ætti að standa við skuldbindingar við fólk af því það væri af erlendum uppruna búsett í öðru landi? Eða hvað snýst þessi vonda tilfinning um?
Vond tilfinning fyrir þessu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.11.2008 | 09:21
Hamingjan horfin?
Nú sitjum við hér saman
Sársaukafull í framan
Það sem að þarf
Er hamingja sem hvarf
Svo það verði aftur gaman
Ætlaði ekki að vera fyndinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.11.2008 | 19:35
Ein tunna er um 159 lítrar
Ég hef aldrei skilið fyrirbærið "tunna af olíu" svo ég fór að leita að upplýsingum til að skilja málið. Þetta fann ég en mun nú ekki leggja líf mitt að veði að þetta sé allt satt og rétt þannig að leiðréttingar eru vel þegnar.
Ein tunna er 159 lítrar af óunninni vöru sem skapar 20 gallon af bensíni og 7 lítra af dísilolíu. Eitt gallon er 3.78541178 lítrar. Þá er sumsé hægt að fá tilbúna 75,7 lítra af bensíni og 26 lítra af díselolíu. Þetta er skv. barnafræðslu á vef orkuupplýsingarstofu bandaríkjastjórnar.
Segjum að bensínið kosti 155 krónur og díselolían 185 krónur þá gerir þetta 11.733 + 4.810 = 16.543 og segjum að gengið á dollar sé 137 krónur þá gerir þetta um 120 bandaríkjadali. þar með ríflega tvöfaldast verðmætið frá því að tunnan er á heimsmarkaði þar til hún er tilbúin vara sem dælt er á bílana okkar.
Hmmm, hvað ætli verðið sé í Bandaríkjunum miðað við þetta?
Olíuverð hríðlækkar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Október 2009
- September 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Jónsson
- Andrés Magnússon
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Matthíasson
- Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
- Baldur Kristjánsson
- Benedikt Sigurðarson
- Bergur Þorri Benjamínsson
- Bjarni Harðarson
- Bleika Eldingin
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Bwahahaha...
- Daði Einarsson
- Dagbjört Hákonardóttir
- Dagbjört Pálsdóttir
- Davíð Jóhannsson
- Dofri Hermannsson
- Dögg Pálsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Helgason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Sveinbjörnsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyþór Árnason
- Eyþór Ingi Jónsson
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Femínistinn
- Finnur Jóhannsson Malmquist
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Gísli Steinar Jóhannesson
- Gísli Tryggvason
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðríður Arnardóttir
- Gunnar Freyr Steinsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gunnsteinn Þórisson
- Gúrúinn
- Hallgrímur Óli Helgason
- Hallur Guðmundsson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Nikulásson
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Helgi Hrafn Halldórsson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Hermann Óskarsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hörður Jónasson
- Ibba Sig.
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga Sig
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Íslandshreyfingin - lifandi land
- Jens Sigurðsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhann Jónsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Jón Svavarsson
- Jón Þór Ólafsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Karl V. Matthíasson
- Kári Harðarson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- kona
- Kristbjörg Sigurðardóttir
- Kristján L. Möller
- Kristján Logason
- Magnús Már Guðmundsson
- Margrét Sverrisdóttir
- Matthías Björnsson
- Morgunblaðið
- Móðir, kona, sporðdreki:)
- Nýkratar
- Orðið á götunni
- Ólöf Nordal
- Ómar Ragnarsson
- Páll Einarsson
- Páll Jóhannesson
- Pálmi Guðmundsson
- Pálmi Gunnarsson
- Perla
- Pétur Björgvin
- Pétur Gunnarsson
- Pollurinn
- Púkinn
- Ragnar Geir Brynjólfsson
- Reynir Antonsson
- Rósa Harðardóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Sigmar Guðmundsson
- Sigurður Axel Hannesson
- Sigurður Kaiser
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Valur Sigurðsson
- Sindri Kristjánsson
- Skapti Hallgrímsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Þórsson
- Stjórnmál
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sverrir Páll Erlendsson
- Sölmundur Karl Pálsson
- Tíðarandinn.is
- Toshiki Toma
- Trúnó
- Valdís Anna Jónsdóttir
- Valgerður Halldórsdóttir
- Vefritid
- Vika símenntunar
- Vilborg Traustadóttir
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Egilson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórhildur Helga Þorleifsdóttir
- Þórir Kjartansson
- Örlygur Hnefill Örlygsson
RSS-straumar
Heimasíða Láru
Hér birtist listi yfir færslur á heimasíðunni minni.
Heimasíðan mín
- Augnablik - sæki gögn...