Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008
11.11.2008 | 20:05
Sterkari utan þings en innan?
Nú bregður Bjarni sér í hóp með Katrínu Jakobsdóttur, Guðfinnu Bjarnadóttur, Ragnheiði Ríkharðsdóttur og Pétri Blöndal og segir pólitískan vettvang sterkari utan þings en innan. Ef pólitík er ekki sterkust þegar menn hafa af henni fulla vinnu og geta helgað henni krafta sína þá verður að velta fyrir sér hvernig þingið starfar. Áður hefur verið deilt á að löggjafarvaldið og framkvæmdavaldið er nánast eitt og hið sama en þar með veikist þrískipting valdsins.
Það er áhyggjuefni hversu margir, sem hafa af því greinargóða þekkingu, telja að þingið sé máttlaust í stjórnmálum.
Fékk aðeins í magann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.11.2008 | 12:03
Hvað er ábyrgð?
Bjarni er maður af meiri við að játa sín mistök skýlaust.
Nú um stundir er hrópað á brottför manna af töluvert stærri mistökum en þessum. Þeir menn eru hinsvegar vissir um að þeir séu bestir til verka þrátt fyrir mistök á mistök ofan.
Það er eiginlega súrt að maður eins og Bjarni sem er þó til í að viðurkenna mistök og taka afleiðingum sé ekki lengur á þingi. En hinsvegar er eiginlega ekki önnur staða möguleg til þess að sýna kjarna þessa manns.
Mistök eru hinsvegar til að læra af og ástandið í samfélaginu er ekki alveg eðlilegt núna og því enn mikilvægara að þingmenn gangi fram af heilindum. Við þurfum að velta fyrir okkur ábyrgð okkar hvert og eitt. Nú þarf samfélagið á öllum að halda hversu smá sem verkin eru.
Ég óska Bjarna velfarnaðar og veit að hann mun marka spor með þessari ákvörðun sem vonandi verður öðrum til eftirbreytni.
Guðni: Bjarni axlar ábyrgð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.11.2008 | 00:19
Kjáni
Óttalegur kjánagangur er hjá kjörnum þingmanni að ætla að senda samflokksmanni sínum "nafnlaust" bréf og afrit á alla fjölmiðla. Er hægt að treysta þessum manni? Hversu "dult" fer hann með aðrar skoðanir sínar?
Áframsendi gagnrýni á Valgerði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.11.2008 | 12:28
Fastir í fílabeinsturnum
Því miður virðist sem að margir forystumenn stéttarfélaga líti í raun á sig sem fjársýslumenn en gleymi sínu hlutverki sem talsmenn alþýðu manna sem er í stéttarfélaginu. Undanfarin ár hefur VR byggt upp ímynd stéttarfélags sem lætur sig félagsmennina varða fyrst og fremst. Nú er öldin hinsvegar önnur og við sjáum að stjórn félagsins og trúnaðarmannaráð telur það réttmætt hlutverk eins aðalstjórnanda verkalýðsfélagsins sé að sitja í stjórn banka. Jafnvel þó að þessi tiltekni stjórnandi sé meintur ákvörðunartaki í að fella niður skuldir þeirra sem ætluðu að verða ríkir á hlutabréfakaupum á kostnað alþýðu manna sem m.a. er í stéttarfélagi stjórnandans.
Allt, allt of margir eru týndir í fílabeinsturnum nútímans án nokkurs jarðsambands eða raunveruleikaskynjunar. Stjórn, framkvæmdastjóri og trúnaðarmannaráð VR hefur gersamlega eyðilagt þá ímynd sem félagið hefur byggt upp, að það vinni fyrst og fremst fyrir félagsmenn sína.
Er sannleikurinn e.t.v. sá að stjórnir lífeyrissjóða og stéttarfélaga eru uppfullar af fólki sem hefur verið í áhættuleikfimi með fé alþýðunnar?
Krefjast almenns félagsfundar í VR | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.11.2008 | 00:48
Söguþjóð og kjaftasöguþjóð
Stundum finnst mér þegar ég les fréttir núorðið að ég sé stödd í miðri sakamálasögu, sakamálaleikriti eða bíómynd um sakamál. Eins og títt er um slíkar sagnir þá vil ég fá niðurstöðuna nokkuð fljótt, ég er nefninlega fljót að lesa, leikrit og bíómyndir taka bara par klukkustundir. En nú eru sögurnar, eða kjaftasögurnar alveg stöðugar, ég hef ekki glóru hverjir eru sökudólgar eða ekki sökudólgar og óttast að það komi aldrei síðasta blaðsíðan, tjaldið falli aldrei í leikhúsinu og bíómyndinni ljúki aldrei.
Þar sem við erum orðin skítblönk þjóð og höfum litla hugmynd um hverjir eru hinir seku þá liggur beinast við að rannsaka allt í kjölinn. En þá kemur spurningin um hvort við eigum að eyða því litla sem eftir er af vesælum krónum í að rannsaka hverjir settu okkur á hausinn. Hingað til hafa menn ekki haft mikið erindi sem erfiði í stórrannsóknum og meintir afbrotamenn eru í versta falli sakfelldir á við þá sem stela sokkabuxum í búð.
Öll þessi orka, öll þessi skrif, öll þessi hróp og allar þessar fréttir. Svörin eru alltaf þau sömu, ekki ég, ekki ég, ekki ég. Enginn gerði neitt sem ekki átti að gera og líklega varð þjóðin gjaldþrota bara sisvona óvart. Kannski menn fari bara að bregða fyrir sig gordonsku og segi "sjitt happens".
Niðurstaðan er einföld, traust þjóðarinnar er brostið á fjársýslumönnum, bankamönnum seðla og sjóða ásamt tiltrú á stjórnmálamönnum hvort heldur þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu.
Og hvað gerum við þá?
Hannes vísar ásökunum á bug | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.11.2008 | 11:09
Ferskur vindur Obama
Sigur Obama í forsetakosningum Bandaríkjanna er táknmynd ferskra vinda sem svo sannarlega var kominn tími til að láta blása um landið. Tími afturhaldsafla, tortryggni, hefndar og heiftar er liðinn undir lok og tími vonar, jafnréttis og lýðræðis blikar við sjóndeildarhringinn.
Enginn skyldi þó ætla að Obama muni sem forseti haga sínum seglum til þjónkunar öðrum þjóðum eða skoðunum, hans hlutverk er fyrst og fremst að vinna að hag sinnar eigin þjóðar. Ólíkt fyrirennara sínum hefur hann hinsvegar lýst yfir samstarfsvilja við aðrar þjóðir og bakgrunnur hans er tengist þremur heimsálfum er líklegur til að að vera traustur þekkingargrunnur til að standa á.
Kjör Obama er tákn um jafnrétti og virðingu fyrir mönnum hvaða kynþætti sem þeir tilheyra. Á sama tíma gefur það fjölmörgum von og trú á eigin möguleikum þrátt fyrir þá fordóma sem þeir hafa búið við. Eins og Ingibjörg Sólrún segir þá er það tækifæri Bandaríkjanna til að marka dýpri spor lýðræðis og friðar í heiminum.
Kjör Obama nýtt tækifæri fyrir Bandaríkin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.11.2008 | 22:48
Hvar er almannavarna- og öryggisráðið???
Hvernig er verið að vinna með fjölmörg mál í því erfiða ástandi sem er núna?
Samkvæmt lögum númer 82 frá 2008 segir:
Markmið almannavarna er að undirbúa, skipuleggja og framkvæma ráðstafanir sem miða að því að koma í veg fyrir og takmarka, eftir því sem unnt er, að almenningur verði fyrir líkams- eða heilsutjóni, eða umhverfi eða eignir verði fyrir tjóni, af völdum náttúruhamfara eða af mannavöldum, farsótta eða hernaðaraðgerða eða af öðrum ástæðum og veita líkn í nauð og aðstoð vegna tjóns sem hugsanlega kann að verða eða hefur orðið.
Er verið að vinna að samræmdum aðgerðum af því ráði sem um það á að sjá eða eru þetta geðþóttaákvarðanir án samráðs milli stofnana og ráðuneyta? Er þetta ráð ekki örugglega starfandi í því efnahagsneyðarástandi sem nú ríkir?
Björn Bjarnason: Ákveðinn misskilningur í gangi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.11.2008 | 20:20
Loksins, loksins?
Það eru nokkur "ef" í þessari frásögn en kannski geta menn nú farið að skoða málið af alvöru. Ólíkt Norðmönnum höfum við aldrei farið í aðildarviðræður og þar með fengið upplýsingar um hver samningur Íslands væri ef gengið væri í Evrópusambandið. Öll umræða hefur í langan tíma verið byggð á getgátum, trú manna á þessu og hinu, spádómum misfróðra manna eða bölsýnisspám. Ég hef ekki hugmynd um hvers konar samning Ísland fengi og það veit ekki nokkur maður nema fara í þessa samninga og greiða síðan um þá atkvæði.
Ég fyrir mitt leyti er orðin hundleið á óljósri umræðu og væntingum. Eina skynsemin er fólgin í því að skilgreina samningsmarkmið, fara í samninga og þá taka afstöðu til hvort samningur er eftirsóknarverður eða ekki í þjóðaratkvæðagreiðslu. Menn verða að sýna þann pólitíska kjark að hætta ímyndarleik í kringum Evrópuumræðu og taka verkefnið fyrir af alvöru.
Tilbúin að endurskoða afstöðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.11.2008 | 15:45
Ávarpar lýðinn?
Um þúsund mótmælendur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Október 2009
- September 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Jónsson
- Andrés Magnússon
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Matthíasson
- Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
- Baldur Kristjánsson
- Benedikt Sigurðarson
- Bergur Þorri Benjamínsson
- Bjarni Harðarson
- Bleika Eldingin
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Bwahahaha...
- Daði Einarsson
- Dagbjört Hákonardóttir
- Dagbjört Pálsdóttir
- Davíð Jóhannsson
- Dofri Hermannsson
- Dögg Pálsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Helgason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Sveinbjörnsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyþór Árnason
- Eyþór Ingi Jónsson
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Femínistinn
- Finnur Jóhannsson Malmquist
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Gísli Steinar Jóhannesson
- Gísli Tryggvason
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðríður Arnardóttir
- Gunnar Freyr Steinsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gunnsteinn Þórisson
- Gúrúinn
- Hallgrímur Óli Helgason
- Hallur Guðmundsson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Nikulásson
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Helgi Hrafn Halldórsson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Hermann Óskarsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hörður Jónasson
- Ibba Sig.
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga Sig
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Íslandshreyfingin - lifandi land
- Jens Sigurðsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhann Jónsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Jón Svavarsson
- Jón Þór Ólafsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Karl V. Matthíasson
- Kári Harðarson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- kona
- Kristbjörg Sigurðardóttir
- Kristján L. Möller
- Kristján Logason
- Magnús Már Guðmundsson
- Margrét Sverrisdóttir
- Matthías Björnsson
- Morgunblaðið
- Móðir, kona, sporðdreki:)
- Nýkratar
- Orðið á götunni
- Ólöf Nordal
- Ómar Ragnarsson
- Páll Einarsson
- Páll Jóhannesson
- Pálmi Guðmundsson
- Pálmi Gunnarsson
- Perla
- Pétur Björgvin
- Pétur Gunnarsson
- Pollurinn
- Púkinn
- Ragnar Geir Brynjólfsson
- Reynir Antonsson
- Rósa Harðardóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Sigmar Guðmundsson
- Sigurður Axel Hannesson
- Sigurður Kaiser
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Valur Sigurðsson
- Sindri Kristjánsson
- Skapti Hallgrímsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Þórsson
- Stjórnmál
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sverrir Páll Erlendsson
- Sölmundur Karl Pálsson
- Tíðarandinn.is
- Toshiki Toma
- Trúnó
- Valdís Anna Jónsdóttir
- Valgerður Halldórsdóttir
- Vefritid
- Vika símenntunar
- Vilborg Traustadóttir
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Egilson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórhildur Helga Þorleifsdóttir
- Þórir Kjartansson
- Örlygur Hnefill Örlygsson
RSS-straumar
Heimasíða Láru
Hér birtist listi yfir færslur á heimasíðunni minni.
Heimasíðan mín
- Augnablik - sæki gögn...