Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
18.10.2009 | 16:06
Fróðlegt mál
Að mér vitandi er þetta í fyrsta skipti sem einhver höfðar mál vegna aðsúgs á neti og annarsstaðar gagnvart fjölda manns. Logið er sannarlega upp á manninn en án þess að leita dóms og laga ræðst fjöldi manna gegn meintum glæpamanni. Þetta mál sýnir okkur betur en nokkuð annað mál hversu hættulegur dómstóll götunnar er. Ég tók mynd af Lúkasi litla í fyrravetur sem má sjá á Flickr síðunni minni en hún er líka límd hérna inn.
Lúkasarmálið fer senn fyrir dóm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2009 | 14:20
Kjaftasögupólitík
Ég er orðin mjög undrandi á framkomu Framsóknarpiltanna hvert þeir eru eiginlega að fara. Yfirlýsingar um að forsætisráðherra vilji ekki skilyrðislaus lán og geti fengið forsætisráðherra Noregs til að ljúga fyrir sig er svo sérkennilegt að ég undrast að nokkur láti sér detta sér í hug að trúa því yfirhöfuð. Eru menn komnir svo langt í afneituninni að næst láta þeir sér detta í hug að Jóhanna stjórni AGS, Evrópusambandinu, Bandaríkjunum og kannski heiminum öllum? Hún geti pantað yfirlýsingar frá ráðamönnum heimsins eins og henni dettur í hug?
Eitt er að láta sér detta í hug að koma með svona fullyrðingar en annað er að trúa þeim.
Jóhanna beitti sér gegn láninu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.9.2009 | 15:28
Alvald þingmanna eða félagsaðild
Tillaga þingmanna féll | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.7.2009 | 00:42
Ef Noregur fer inn, hvar erum við þá?
Íslensk umsókn rædd í Noregi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.7.2009 | 11:07
Hindra ákvarðanir byggðar á þekkingu
Áfram deilt um ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.7.2009 | 02:06
Viska "að handan"
Ég verð að dást að snilld Sjálfstæðismanna að sækja fram og fá fólk til að trúa sér þrátt fyrir að það hafi komið skýrt fram í fjölmiðlum um að þeir hafi gert nákvæmlega hið þverstæða. Var ekki einhver smáundirskrift sem Árni Matt og Davíð skutluðu á pappír - alveg gleymt. Lækkaði Davíð ekki vexti nokkrum dögum áður en AGS kom að málum og hækkuðu vextirnir ekki lítið m.v. það sem þeir voru nokkrum dögum fyrr? Það er eins og mig rámi í það.
Tilvísanir um að hitt og þetta sé "til í kerfinu" hefur hingað til reynst haldlaust og hvorki Davíð né embættismenn hafa getað fundið það sem hann segir að sé til. Sumsé þegar starfsævin á ríkisspenanum er búin þá er hægt að öðlast gríðarlegar gáfur "að handan" um allt sem ekki var hægt að ráða við eða átta sig á þegar til þess var tækifæri. Sumsé viskan jókst þegar hægt var að kenna öðrum um en sjálfum sér.
En eins og ég segi, ég þekki Íslendinga illa ef þeir byrja ekki að bugta sig og beygja fyrir orðum þessa manns. Gullfiskaminnið er aðalsmerki þjóðarinnar og kannski þess vegna höfum við alltaf verið svo hamingjusöm;-)
Fyrr en varir verða D og B komnir aftur saman í ríkisstjórn en það er best að hafa varann á, þeir eiga eftir að drepast úr hlátri yfir því hvernig var hægt að spila með fólk.
Gerði ekki kröfu um greiðslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.7.2009 | 18:10
Auðvitað
Ég hef aldrei skilið þá röksemdafærslu að það sé rétt að halda íslensku þjóðinni í myrkri hvað varðar Evrópusambandið. Fyrir löngu síðan komst ég að þeirri niðurstöðu að þeir sem vildu nota íslensku krónuna í fjárhættuspili væru þeir sem helst væru andsnúnir þeim möguleika að Ísland gangi í sambandið. Ég hef ekkert skipt um skoðun á því.
Eina leiðin til að vita hvað í sambandsaðild felst er að fara í samningaviðræður og hafa það svart á hvítu. Ég er orðin hundleið á öllum þessum sérfræðingum sem ímynda sér hitt og þetta byggt á hinu og þessu sem kannski eða kannski ekki er rétt. Ég hef setið fleiri fundi en ég nenni að muna um efnið og veit að það eru álitamál en úr þeim fæst ekki skorið nema með aðildarviðræðum.
Hvenær ætlar Alþingi Íslendinga að gefa okkur leyfi til að vita sannleikann? Það er blátt áfram fáránlegt að ætla íslensku þjóðinni að greiða atkvæði um eitthvað sem enginn veit. Eina vitið er að greiða atkvæði þegar við vitum það.
Óupplýst þjóð liggur í skuldafeni, upplýstar ákvarðanir eru það sem við þurfum og þá ákvörðun getum við tekið þegar við sjáum hvað í samningi við Evrópusambandið felst. Fyrr ekki. Þeir sem vilja halda áfram að halda okkur í myrkri hvað þetta varðar hafa einhverja aðra hagsmuni í huga en íslensku þjóðarinnr.
Viðræður skera úr um hvað Íslandi býðst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.6.2009 | 19:24
Kostar ekkert
Hermann Jón hefur afsalað sér biðlaunum sem og fráfarandi bæjarstjóri. Þarna sýna menn í erfiðum kringumstæðum hvernig á að vinna. Fyrir okkur hjá Samfylkingunni er spennandi að taka við keflinu þrátt fyrir að tímarnir séu erfiðir. Hópurinn sem stendur að baki Hermanns er þéttur og hefur fundað á hverjum mánudegi frá upphafi kjörtímabils. Þar hittast fulltrúar í nefndum, ungliðar og 60+ og fara yfir málin. Þetta er um 20 manna hópur, nýir bætast við og aðrir flytjast burtu. Fyrir vikið er hópurinn meðvitaður um hvað er að gerast, tekur þátt í ákvörðunum og stefnumótun.
Starfið hefur verið til fyrirmyndar og verður gaman að fást við aðdraganda kosninga með stefnumótunarvinnu og lausnaleit því næg eru verkefnin.
Akureyri komi sem best út úr öldudalnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.6.2009 | 17:32
Heyr, heyr
Stafrænar skólabækur í Kaliforníu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.5.2009 | 22:35
Glæsileg keppni
Í hverri viku hef ég undrast hversu margt hæfileikaríkt fólk hefur verið í þessari keppni. Ótrúlega margir hefðu getað unnið Holly Steel, Shaheen Jafargholi, Flawless, Adrian Davis, Julian Smith, Shaun Smith, Greg Prichard svo ekki sé minnst á Susan Boyle og Diversity. Susan varð heimsfræg á örskotsstundu og mun því örugglega geta látið draum sinn rætast um að gefa út plötu. Þessi atvinnulausa kona sem sinnir sjálfboðastarfi í kirkjunni sinni felur feimnina bak við dálitla stæla. Hún skaðaðist í fæðingu og hefur því átt erfitt með nám en hefur greinilega stórt hjarta því hún sinnti móður sinni fram í andlátið. Þá var komið að henni sjálfri og Britain Got Talent gaf henni tækifæri. Lífið hefur breyst mikið fyrir þessa tæplega fimmtugu konu á stuttum tíma.
Styrkleiki Diversity var fyrst og fremst kóreógrafían sem var tær snilld. Tíu piltar, þar af þrennir bræður, af þremur kynþáttum, litlir og stórir, við nám og störf í afar mismunandi greinum. Saman voru þeir hinsvegar eins og ein vel smurð vél. Fyrst hrifu þeir mig vegna þess boðskapar sem var í atriði þeirra, síðan hversu agaðir þeir voru í dansi sínum sem kannski er meira leikþáttur og látbragðsleikur samþætt við ótrúlega dansfimi.
Það voru margir í miklu uppáhaldi hjá mér en helstir voru líklega Holly Steel og Greg Prichard ásamt Diversity og Susan Boyle. Diversity eru vel að sigrinum komnir en fyrst og fremst má óska þeim sem sjá um þennan sjónvarpsþátt til hamingju. Við grófum eftir gulli sagði einn dómarinn og við fundum það. Dag eftir dag horfðu þau á mismunandi vel heppnuð atriði sem áreiðanlega hefur tekið á þolinmæðina, en þau uppskáru laun erfiðisins, frábæra sjónvarpsþætti sem njóta heimsathygli og á sama tíma gáfu þau fólki tækifæri sem hafði þau ekki áður.
Boyle tapaði fyrir dönsurum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Október 2009
- September 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Jónsson
- Andrés Magnússon
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Matthíasson
- Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
- Baldur Kristjánsson
- Benedikt Sigurðarson
- Bergur Þorri Benjamínsson
- Bjarni Harðarson
- Bleika Eldingin
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Bwahahaha...
- Daði Einarsson
- Dagbjört Hákonardóttir
- Dagbjört Pálsdóttir
- Davíð Jóhannsson
- Dofri Hermannsson
- Dögg Pálsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Helgason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Sveinbjörnsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyþór Árnason
- Eyþór Ingi Jónsson
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Femínistinn
- Finnur Jóhannsson Malmquist
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Gísli Steinar Jóhannesson
- Gísli Tryggvason
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðríður Arnardóttir
- Gunnar Freyr Steinsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gunnsteinn Þórisson
- Gúrúinn
- Hallgrímur Óli Helgason
- Hallur Guðmundsson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Nikulásson
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Helgi Hrafn Halldórsson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Hermann Óskarsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hörður Jónasson
- Ibba Sig.
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga Sig
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Íslandshreyfingin - lifandi land
- Jens Sigurðsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhann Jónsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Jón Svavarsson
- Jón Þór Ólafsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Karl V. Matthíasson
- Kári Harðarson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- kona
- Kristbjörg Sigurðardóttir
- Kristján L. Möller
- Kristján Logason
- Magnús Már Guðmundsson
- Margrét Sverrisdóttir
- Matthías Björnsson
- Morgunblaðið
- Móðir, kona, sporðdreki:)
- Nýkratar
- Orðið á götunni
- Ólöf Nordal
- Ómar Ragnarsson
- Páll Einarsson
- Páll Jóhannesson
- Pálmi Guðmundsson
- Pálmi Gunnarsson
- Perla
- Pétur Björgvin
- Pétur Gunnarsson
- Pollurinn
- Púkinn
- Ragnar Geir Brynjólfsson
- Reynir Antonsson
- Rósa Harðardóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Sigmar Guðmundsson
- Sigurður Axel Hannesson
- Sigurður Kaiser
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Valur Sigurðsson
- Sindri Kristjánsson
- Skapti Hallgrímsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Þórsson
- Stjórnmál
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sverrir Páll Erlendsson
- Sölmundur Karl Pálsson
- Tíðarandinn.is
- Toshiki Toma
- Trúnó
- Valdís Anna Jónsdóttir
- Valgerður Halldórsdóttir
- Vefritid
- Vika símenntunar
- Vilborg Traustadóttir
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Egilson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórhildur Helga Þorleifsdóttir
- Þórir Kjartansson
- Örlygur Hnefill Örlygsson
RSS-straumar
Heimasíða Láru
Hér birtist listi yfir færslur á heimasíðunni minni.
Heimasíðan mín
- Augnablik - sæki gögn...