29.12.2007 | 01:53
Svarthvítt eða litur
Ég hef verið að velta fyrir mér hvort það sé listrænna að taka svarthvítar ljósmyndir eða í lit. Hérna í eina tíð var talið að ekkert væri list nema ljósmyndin væri svarthvít og litmyndir væru fyrst og fremst fyrir lágkúrulegar auglýsingar ef ég man rétt úr ljósmyndasögunni. Einn af þeim sem breytti viðhorfi manna var Ernst Haas en hann leit svo á að litljósmynir væru ekki síður list ef menn kynnu með liti að fara.
Eftir dálitla hugsun áttaði ég mig á því að mér finnst svarthvít ljósmynd fjær mér en sú í lit, fjær í tíma og fjær sálinni á einhvern hátt. Líklega af því hún er óraunveruleg, ég sé ekki í svarthvítu. Þá er spurning hvort það sé erfiðara að taka góða litljósmynd en svarthvíta. Þarf að velta því fyrir mér áfram;-)
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Eldri færslur
- Október 2009
- September 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
Bloggvinir
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Jónsson
- Andrés Magnússon
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Matthíasson
- Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
- Baldur Kristjánsson
- Benedikt Sigurðarson
- Bergur Þorri Benjamínsson
- Bjarni Harðarson
- Bleika Eldingin
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Bwahahaha...
- Daði Einarsson
- Dagbjört Hákonardóttir
- Dagbjört Pálsdóttir
- Davíð Jóhannsson
- Dofri Hermannsson
- Dögg Pálsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Helgason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Sveinbjörnsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyþór Árnason
- Eyþór Ingi Jónsson
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Femínistinn
- Finnur Jóhannsson Malmquist
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Gísli Steinar Jóhannesson
- Gísli Tryggvason
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðríður Arnardóttir
- Gunnar Freyr Steinsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gunnsteinn Þórisson
- Gúrúinn
- Hallgrímur Óli Helgason
- Hallur Guðmundsson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Nikulásson
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Helgi Hrafn Halldórsson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Hermann Óskarsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hörður Jónasson
- Ibba Sig.
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga Sig
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Íslandshreyfingin - lifandi land
- Jens Sigurðsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhann Jónsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Jón Svavarsson
- Jón Þór Ólafsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Karl V. Matthíasson
- Kári Harðarson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- kona
- Kristbjörg Sigurðardóttir
- Kristján L. Möller
- Kristján Logason
- Magnús Már Guðmundsson
- Margrét Sverrisdóttir
- Matthías Björnsson
- Morgunblaðið
- Móðir, kona, sporðdreki:)
- Nýkratar
- Orðið á götunni
- Ólöf Nordal
- Ómar Ragnarsson
- Páll Einarsson
- Páll Jóhannesson
- Pálmi Guðmundsson
- Pálmi Gunnarsson
- Perla
- Pétur Björgvin
- Pétur Gunnarsson
- Pollurinn
- Púkinn
- Ragnar Geir Brynjólfsson
- Reynir Antonsson
- Rósa Harðardóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Sigmar Guðmundsson
- Sigurður Axel Hannesson
- Sigurður Kaiser
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Valur Sigurðsson
- Sindri Kristjánsson
- Skapti Hallgrímsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Þórsson
- Stjórnmál
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sverrir Páll Erlendsson
- Sölmundur Karl Pálsson
- Tíðarandinn.is
- Toshiki Toma
- Trúnó
- Valdís Anna Jónsdóttir
- Valgerður Halldórsdóttir
- Vefritid
- Vika símenntunar
- Vilborg Traustadóttir
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Egilson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórhildur Helga Þorleifsdóttir
- Þórir Kjartansson
- Örlygur Hnefill Örlygsson
RSS-straumar
Heimasíða Láru
Hér birtist listi yfir færslur á heimasíðunni minni.
Heimasíðan mín
- Augnablik - sæki gögn...
Athugasemdir
Sæl! Sigga hér. Hef verið að spá svolítið í þetta með ljósmyndirnar.
Mér finnst eins og svarthvítar myndir séu frekar ,,tímalausar" en litmyndir. Þær valda einhvern veginn öðrum áhrifum.
Kannski spilar líka inn í þetta að litir eru misjafnlega samofnir skynjun fólks. Sumir sjá kannski meira út úr svarthvítri mynd því hún kveikir einhver hughrif sem tengjast þá m.a. litum. Litmyndir eru þá meira ,,konkret", þetta er bara svona á litinn og ekki orð um það meir...
Veit ekki. Kannski spilar þarna inn í að ég sé svo miklu fjölbreyttari og fleiri liti í huganum en með augunum, (alltaf skrítin..) Öll mannanöfn sé ég t.d. í litum. Einnig flest staðarnöfn. Þessu valda ákveðnar tengingar í heilanum, sem eru öðruvísi en hjá þorra manna og kallast samskynjun, eða synesthesia. Jæja, þetta var nú svona útúr dúr.
En gangi þér vel í náminu!
Sigga Birna (IP-tala skráð) 29.12.2007 kl. 03:36
Sæl! Sigga hér. Hef verið að spá svolítið í þetta með ljósmyndirnar.
Mér finnst eins og svarthvítar myndir séu frekar ,,tímalausar" en litmyndir. Þær valda einhvern veginn öðrum áhrifum.
Kannski spilar líka inn í þetta að litir eru misjafnlega samofnir skynjun fólks. Sumir sjá kannski meira út úr svarthvítri mynd því hún kveikir einhver hughrif sem tengjast þá m.a. litum. Litmyndir eru þá meira ,,konkret", þetta er bara svona á litinn og ekki orð um það meir...
Veit ekki. Kannski spilar þarna inn í að ég sé svo miklu fjölbreyttari og fleiri liti í huganum en með augunum, (alltaf skrítin..) Öll mannanöfn sé ég t.d. í litum. Einnig flest staðarnöfn. Þessu valda ákveðnar tengingar í heilanum, sem eru öðruvísi en hjá þorra manna og kallast samskynjun, eða synesthesia. Jæja, þetta var nú svona útúr dúr.
En gangi þér vel í náminu!
Sigríður Birna Guðjónsdóttir, 29.12.2007 kl. 03:52
Ég held að þetta fari alveg eftir því hvað þú vilt sýna og hvaða hughrifum þú vilt ná með myndinni. Mér finndist t.d. lítið varið í haustlitamynd í svart hvítu. En myndir af fólki og þá helst gömlum og veðurbörðum andlitum vil ég endilega sjá sv.hv. En auðvitað á ljósmyndarinn sjálfur að ákveða sitt tjáningarform. Bkv. frá Vík.
Þórir Kjartansson, 29.12.2007 kl. 10:50
Ég er alvega sammála því að það er fyrst og fremst ljósmyndarinn sem ákveður. Ég nýt svarthvítra mynda og finnst þær fallegar og skemmtilegar. Hinsvegar er ég að velta fyrir mér minni eigin ljósmyndun og er að skoða hvort svarthvítar myndir er eitthvað sem ég vil skoða alvarlega.
Lára Stefánsdóttir, 29.12.2007 kl. 18:35
Svart/hvítar v/ litmyndir, má ég biðja frekar um litinn. Þegar ég skoða svart/hvítar myndir dett ég ávallt inn í fortíðina hugsa um gamla daga, aftur til fortíðar. Ég hrífst meir af litmyndum.
Áramótakveðja
Páll Jóhannesson, 30.12.2007 kl. 10:43
Ég held að hvort um sig sé nánast alveg sjálfstæð listgrein og beggja sé hægt að njóta á sinn hátt, eins og er t.d. með selló eða kontrabassa, fiðlu eða lágfiðlu. Það er ekki sami hluturinn en býður upp á sjálfstæðar túlkanir sem ekki er hægt að ná fram með öðru móti.
Bestu áramótakveðjur og þakkir fyrir liðin ár.
Ragnar Geir Brynjólfsson, 30.12.2007 kl. 15:06
Ég er sammála Siggu um tímaleysi svarthvítra mynda af fólki, kannski má segja að litir komi og fari úr tísku en hið svarthvíta lifi í einhverskonar tímaleysi. Ef við horfum t.d. á þessa mynd eftir William Eggleston þá sjáum við um leið að hún er tekin einhverstaðar á sjöunda áratugnum, líklega í Bandaríkjunum. Litirnir setja tíma á myndina af því að konan er í ótrúlega skræpóttum kjól og situr á enn skræpóttari sófa.
Ef við skoðum hinsvegar Ernst Haas sem er einn af mínum uppáhaldsljósmyndurum og myndaði m.a. í Surtsey og skoðum þessa mynd þá er hún algerlega tímalaus.
Svo stundum setja litmyndir tíma á ljósmynd en stundum ekki.
Að hluta til held ég að Ragnar sé á réttri leið þó kannski sé of þröngt að flokka þessar mismunandi tegundir ljósmynda sem einstök hljóðfæri og frekar túlka þær sem mismunandi hljómsveitir. Því innan myndanna geta síðan verið lík eða ólík viðfangsefni.
Páll talar um fortíðardrama í svarthvítum myndum og ég get verið sammála því að hluta til en hann dregur einnig fram smekk þ.e. honum líkar betur nútímalegri myndir. Þeir sem eru hrifnari af fortíðinni gætu því verið hrifnari af svarthvítum myndum.
Að sumu leyti má segja að það sé flóknara að taka góða litmynd heldur en góða svarthvíta mynd. Litir spila saman á flókinn hátt þegar svarthvít mynd spilar einungis á blöndu af hvítu og svörtu þar sem þær myndir eru yfirleitt aldrei alveg hvítar (255) eða alveg svartar (0) heldur mjög nálægt því. Í litmyndum þarf að spila með hreina liti s.k. hue og síðan blöndu við þá af svörtu (tja eða hvítu) eða s.k. saturation. Þannig eru menn hrifnir í dag af myndum sem hafa tiltölulega þrönga liti.
En auðvitað voru ljósmyndarar eins og til dæmis Ansel Adams listamenn með svarthvítar myndir en þær voru auðvitað gríðarlega mikið unnar til að fá þær eins og hann vildi og var hann með hóp aðstoðarmanna í því eins og flestir sem framkalla svarthvítar myndir af filmu á pappír.
Áhugaverð pæling...
Lára Stefánsdóttir, 30.12.2007 kl. 20:53
Þórir talar um að sjá gömul veðurbarin andlit í svarthvítu en síður í lit. Þá er spurning hvort andlit eins og þetta hér væri betra í svarthvítu eða hvort það njóti sín virkilega í lit. Hvað finnst mönnum um það?
Lára Stefánsdóttir, 30.12.2007 kl. 21:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.