Leita í fréttum mbl.is

Auður er ekkert

Atkvæði sem er autt er ekkert í sjálfu sér. Það hefur engin áhrif á stjórn landsins og ef einhver er svo ótengdur veruleikanum að hann veit ekki af óánægju í samfélaginu þá fer örugglega fram hjá honum líka hversu margir skili auðu.

Mér er fyrirmunað að skilja hvað menn telja að komist til skila með auðu atkvæði, auðvitað kemst það til skila að þeir menn vilji fleiri eða önnur framboð en hafa ekki haft dug í sér til að koma þeim á legg sjálfir.

 


mbl.is Höfðu áhrif á röðina á listum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kæra Lára Stefánsdóttir. Í hita leiksins er hætt við að menn grípi til alhæfinga, sleggjudóma og missagna. Í þínu tilfelli má fyrirgefa þér hræðsluáróðurinn þar sem þú hefur vondan málstað að verja.

Förum aðeins yfir yfirlýsingarnar hjá þér:

1. "Auður er ekkert (Atkvæði sem er autt er ekkert í sjálfu sér)": Á bak við hvern kjörseðil er eitt atkvæði, einn einstaklingur. Ef kjósandi kýs að skila auðu stendur hann fyllilega fyrir því áliti, ergo það er ekki ekkert, það er ákveðin niðurstaða kjósandans.

2. "Það hefur engin áhrif á stjórn landsins": Þessi staðhæfing er að sama skapi röng. Það er ekki atkvæði kjósanda sem eytt er á ákveðinn flokk sem skiptir máli heldur vald hans, á grundvelli íslensks ríkisborgaréttar, sem málið snýst um. Kjósendur geta hvenær sem er komið sér saman um að steypa ranglátum, vanhæfum valdhöfum.

3. "...ef einhver er svo ótengdur veruleikanum að hann veit ekki af óánægju í samfélaginu þá fer örugglega fram hjá honum líka hversu margir skili auðu": Þetta er einfaldlega hundalógikk og ekki samboðin margföldum meistaranema. Til að meta raunverulega óánægju kjósenda með þau aumu framboð sem í kjöri eru er ekkert betra heldur en að telja auða atkvæðaseðla upp úr kjörkössunum. Þetta eru þeir einstaklingar sem hafa kjark og þor til að stíga fram og láta í sér heyra. Bak við þá raunverulegu óánægjuyfirlýsingu má ætla að mun fjölmennari hópur standi í raun.

4. "Mér er fyrirmunað að skilja hvað menn telja að komist til skila með auðu atkvæði": Fer þá ekki best á að þú reynir að komast til botns í þeirri ráðgátu áður en þú skautar fram á netinu með yfirlýsingar og sleggjudóma? Þeir kjósendur sem skila auðu eru að koma þeim skýru skilaboðum áleiðis til valdhafa og þjóðfélagsins í heild að þeim hugnast enginn af þeim pólitísku kostum sem í boði eru. Í ljósi þeirra pólitísku hamfara sem fávísir og vanhæfir stjórnmálamenn í sjáLfstæðisFLokki, framsóknarflokki, samspillingu og VG hafa kallað yfir þjóðina á undanförnum árum og mánuðum er í raun auðvelt, fyrir sjálfstæðan mann, að komast að þeirri niðurstöðu að það sé ekki hægt að treysta ríkisrekinni samtryggingu þessara flokka.

5."...auðvitað kemst það til skila að þeir menn vilji fleiri eða önnur framboð en hafa ekki haft dug í sér til að koma þeim á legg sjálfir": Heldur þykir mér nú varaþingmaður samspillingarinnar tala digurbarklega og niður til smælingjanna. Þið leyfið ykkur að reyta hálfan milljarð af þjóðinni í framboðssukk og sláið ekki hendinni á móti kr. 300.000,- framlagi frá ótöldum fyrirtækjum í mútur og gæslufé og segið svo bara "gerðu það sjálf/ur". Þjóðin gerði það sjálf í vetur leið, ef skammtímagullfiskaminni þitt er bundið við mín. og sek. Þjóðin (ekki Solla stirða) kom saman og velti vanhæfum valdhöfum úr sessi. Að vísu skreið helmingur spillingaraflanna uppí hjá VG (eða var það öfugt) með dyggum stuðningi spillingaflokks allra tíma, framsóknarflokksins. Nú kunna Íslendingar loksins að taka á ríkisreknu flokksræði og við erum sannarlega tilbúin að endurtaka leikinn eftir þessar kosningar.

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 10:39

2 identicon

Að skila auðu er ekki ekkert (ekkert er ekkert).  Sá sem skilar auðu hefur augljóslega ekki fundið neinn valkost á kjörseðlinum sem honum þykir verðugur fulltrúi hans á hinu háa Alþingi.  Það er óþarfa dónaskapur að væna slíkt fólk um að vera of mikla aumingja til að bjóða sig fram sjálft, sjái það þann kost vænstan að skila auðu.

Ég persónulega hef lengi haft áhuga á því að opna kostningaskrifstofu þeirra sem skila auðu.  Það er ekki vegna þess að ég hafi nokkurntíma gert það.  Heldur er það vegna þeirrar staðföstu skoðunnar að auðir atkvæðaseðlar teljist til afstöðu.

 Þess vegna á að kvetja fólk til að mæta á kjörstað, þó ekki væri nema til að skila auðu.  Mér persónulega fynnst sá sem skylar auðum atkvæðaseðli tala skýrar en sá sem heima situr.

Árni (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 11:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Lára Stefánsdóttir
Lára Stefánsdóttir

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband