Leita í fréttum mbl.is

Netfréttir - á hvaða leið eru þær?

Enn aukast fréttir frá Norðurlandi, fyrir höfðum við dagur.net sem á heima í Svarfaðardal en eins og þeim er lagið þá sinna þeir Eyjafirði afskaplega vel. Á Akureyri er gefið út akureyri.net sem er líflegur miðill og sérstaklega duglegur að sinna sínum heimabæ þá N4 sem er einnig á Akureyri og rekur netmiðil auk sjónvarpsmiðils og auglýsingadagskrár og síðan kemur frá Húsavík skarpur.is sem einnig gefur út fréttablaðið Skarp. Þannig að flóran er mikil og ekki er hægt að segja að við Norðlendingar fáum ekki fréttir úr heimahéraði.

Stóru miðlarnir bæði mbl.is og visir.is tengja sínar fréttir við blogg og þar með getur lesandinn rætt um fréttina eða rætt við fréttina bæði við sjálfan sig og aðra. Norðlensku miðlarnir hafa ekki þennan möguleika og eru því einstefnumiðlar að því leytinu til að þeir senda út fréttir en taka ekki á móti. Spurningin er þá hvaða hlutverk umræðan við fréttina hefur. Skarpur hefur að vísu umræðusvæði en það tengist ekki endilega fréttum í blaðinu heldur því sem Húsvíkingar eða Norðurþingsmenn vilja ræða hverju sinni.

Ég velti fyrir mér hvert netmiðlun mun þróast og held enn að Current.tv sé nútímalegasti miðillinn þar sem allir geta sent inn fréttir, kosið um  hvaða frétt á erindi til margra og þannig stýrt því hvað er efst á baugi. Spurningin er hvort þetta sé lýðræðislegasta leiðin.

En frá því ég fór að nota Internetið að marki árið 1991 hefur margt gerst en þó sýnu minna í seinni tíð en áður eins og einkenni upplýsingatækninnar hefur verið. Ég held að eftirsóknarverður netmiðill hér á landi væri miðill þar sem allir geta skrifað fréttir og síðan séu greidd atkvæði um hvað ætti að vera efst á baugi í þeim miðlinum. Væri spennandi að sjá hvers konar fréttir yrðu þá efst á baugi. Væru það stríðsfréttir frá Írak og umferðarfréttir frá Íslandi eins og virðast helstu fréttir undanfarið?


mbl.is Verkalýðsfélag sér um samfélagsþjónustu útlendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Sæl Lára!

Sá á heimasíðunni þinni að þú vitnaðir í Sigrúnu Stefáns. Ef það er sú sama (fréttakona?) sem kenndi mér (og Elfu Ýr Gylfadóttur, fósturdóttur minni) hagnýta fjölmiðlun í HÍ á sínum tíma? - skilaðu þá góðri kveðju til hennar frá mér.

Og lifðu sjálf heil!

 Kveðja úr löndum Ynglinga!

Sáli í Svíþjóð.

Ásgeir Rúnar Helgason, 24.6.2007 kl. 19:08

2 Smámynd: Birnuson

Þegar árið nítjánhundruðníutíuogeitt? Athyglisvert! Tölvupóst geri ég ráð fyrir; eitthvað fleira á þeim tíma?

Birnuson, 25.6.2007 kl. 13:48

3 Smámynd: Lára Stefánsdóttir

Ásgeir: Nei, þessi Sigrún er bæjarfulltrúi á Akureyri. Hin Sigrún Stefánsdóttir er núna yfirmaður rásar 1 og 2 býr hér en vinnur mest fyrir sunnan en ef ég rekst á hana á götu skal ég skila kveðju;-)

Lára Stefánsdóttir, 25.6.2007 kl. 19:16

4 Smámynd: Lára Stefánsdóttir

Sigurjón: Já já, ftp og gopher. Það var býsna margt til en það voru svo fáir á Netinu að maður kynntist ótrúlega mörgum;-)

Lára Stefánsdóttir, 25.6.2007 kl. 19:17

5 Smámynd: Heiða  Þórðar

Innlitskveðja á þig mín kæra.

Heiða Þórðar, 28.6.2007 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Lára Stefánsdóttir
Lára Stefánsdóttir

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband