Leita í fréttum mbl.is

Aftur og nýbúinn...

Ég hélt ég væri að lesa gamlan Mogga þegar ég las þessa frétt, það er stutt síðan vísað var í Mohamad ElBaradei um þetta sama mál. En síðan verða þetta aftur fréttir stuttu síðar þegar ElBaradei talar við Financial Times. Kannski eru það tímasetningarnar sem nú skipta máli eða er það sama upp á teningnum núna og þegar verið var að sannfæra heiminn um að Írakar væru um það bil að framleiða gjöreyðingarvopn?

Spurningin er líka sú í þessu samhengi hversu langt er hægt að ganga að þjóðum þar til óhapp verður. Er staðan þannig að Íran myndi sprengja kjarnorkusprengju í öðru landi sér til gamans gert? Eða er fyrst og fremst verið að tala um athugasemdir þeirra varðandi Ísrael og þeir geti þá hugsanlega komið sprengju þangað heiman að frá sér?

Mig vantar frekari upplýsingar, geta Íranir sprengt kjarnorkusprengju í Ísrael, koma þeir henni þangað yfir Írak og Jórdaníu? Eða fjallar óttinn um að sprengt verði í Írak þar sem Bandaríkjamenn ásamt fleirum eru með herdeildir. Hverjum stafar mesta ógnin af Íran í dag?


mbl.is IAEA: Íranar gætu hafið fjöldaframleiðslu á auðguðu úrani á næstu sex mánuðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björgvin Gunnarsson

Það stafar engin hætta af Íran því þeir hafa engar kjarnorkusprengjur til að sprengja (og ef þeir myndu sprengja væri það líklega í sjálfsvörn), það tekur þá minnst 10 ár að búa þær til. Bandaríkin og Ísrael eru samt dugleg í áróðursstarfseminni því fyrr en seinna á að ráðast á Íran, á einn eða annan hátt. 

Björgvin Gunnarsson, 20.2.2007 kl. 01:37

2 identicon

„Athugasemd“ er ekki rétta orðið um yfirlýsinguna: „...þurrka þarf Ísrael af blaðsíðum sögunar...“ ef við þýðum beint.

Enn já það er einkum Ísrael sem óttast að verða fyrir árás frá Íran, annaðhvort með beinum hætti (eldflaugar) eða með aðstoð hryðjuverkasamtaka á borð við Hezbollah.Annars hvað mig varðar þá skiptir ekki máli hvort Íran eða Svíþjóð eiga að hlut, við þurfum ekki fleiri vitleysinga með höndina yfir stórum rauðum takka sem gæti allt eins verið merktur: „HEIMSENDIR“.

Gísli (IP-tala skráð) 20.2.2007 kl. 01:45

3 identicon

Mistökin hjá Írönum er að þeir haga sér eins og siðmenntuð vestræn þjóð. Að halda því fram að þeir ætli sér að auðga úran í friðsamlegum tilgangi eins og t.d. Svíþjóð, Þýskaland, Japan og fleiri góðar þjóðir er út í hött. Það að IAEA hafi ekki fundið nein sönnunargögn um sprengjugerð eða áætlun þar um sýnar bara hversu útsmognir þeir eru.

Það er augljóst mál að Íranir ætla sér eitthvað illt með þessu, enda eru þeir múhameðstrúar og þannig fólki er að sjálfsögðu ekki treystandi fyrir neinum geislavirkum efnum. Vonandi verða þeir stoppaðir af áður en það er of seint.

Benni (IP-tala skráð) 20.2.2007 kl. 09:07

4 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Mesta ógnin í heiminum í dag eru Bandaríkjamenn. Þeir eru tilbúnir að troða illsakir við alla. Hvað eru svoleiðis ríki kölluð í mannkynssögunni ?

Jón Ingi Cæsarsson, 20.2.2007 kl. 23:27

5 identicon

Heimsveldi, en þýðir það að tvennt slæmt gerir eitt gott? Íran má gera hvað sem það vill af því BNA er vondi kallinn í þínum augum og ekki má tala og hugsa um annað?

Gísli (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 11:29

6 Smámynd: Lára Stefánsdóttir

Gísli: Nei ég skal alveg fallast á að "athugasemdin" var hótun og ég ætla ekkert að gera lítið úr henni hún var óþörf en eftir að hafa horft yfir flóttamannabúðir Palestínumanna í Jórdaníu fyrir tveimur árum sem þar höfðu verið í hálfa öld þá á maður erfitt með að skilja hvers vegna er ekki hægt að leysa málin á þessu svæði. Það hefur mönnum ekki tekist svo vandinn er fyrir hendi.

Ég held að Svíar séu með auðgað úran sem þeir nota til að keyra kjarnaofna í kjarnorkuverunum sínum.

Hvað varðar hótanir Bandaríkjamanna við Íran þá hefur þeim ekki gengið það sem þeir ætluðu sér í Afganistan og Írak þannig að ólíklegt má telja að þeir nái árangri í Íran. Ég tel að innrásarstefnan hafi ekki sannað gildi sitt til að koma á friði eða spekt í Arabaheiminum og velti fyrir mér hvort innrásir séu rétta leiðin. Ég hef á tilfinningunni - já bara tilfinningunni, ég veit þetta ekki frekar en aðrir - að hér séu Bandaríkjamenn e.t.v. að hlaupa framúr sér eins og þeir gerðu með Írak því ekki eru þeir farnir að finna gereyðingarvopnin þar ennþá sem voru helsta ástæða innrásarinnar þangað. Og já ég held að Saddam Hussein hafi verið vondur stjórnandi en þá segja menn það bara og taka að sér að ryðja slíku fólki úr vegi. En hver á að dæma það hlutlægt hverjir eru vondir og hverjir eru góðir???

Lára Stefánsdóttir, 21.2.2007 kl. 23:13

7 Smámynd: Haukur Nikulásson

Það er náttúrulega fráleitt að ætla Írönum það að þeir séu í saklausri almennri raforkuframleiðslu og til þess þurfi þeir auðgað úran til að knýja kjarnorkuver. Auðvitað eru þetta bara sprengjugerðarmenn upp til hópa.

Fáum bara Landsvirkjun til að kenna þeim að búa til eitt stykki Kárahnjúkavirkjun þarna með þeirri breytingu að nota rennandi sand í stað vatns.

Í alvöru talað virðast bandaríkjamenn leita logandi ljósi að ástæðu til að stela olíunni í Íran eins og Írak. Til þess að réttlæta innrás þarf ástæður sem sannfæra almenning um að það "hafi verið rétt ákvörðun miðað við þær forsendur sem þá lágu fyrir". Spurningin er hvort almenningur á vsturlöndum fáist til að trúa sömu lyginni tvisvar í röð á skömmum tíma. Það væri reyndar snilld.

Miðað við hótanir bandaríkjamanna skil ég vel að Íranir vilji gefa í skyn að þeir geti hugsanlega hefnt sín. Árásir Ísraela á Líbanon vegna eins mannráns drápu rúmlega 1000 líbana og ollu ómældum hörmungum. Þetta styðja bandaríkjamenn gagnrýnislítið og beita jafnvel neitunarvaldi í öryggisráðinu þegar þessir glæpir  er fordæmdir af öðrum.

Bara það að kjarnavopn eru til eru stórkostleg ógn við mannkyn. Skiptir hér engu máli hvort þau eru í höndum "ábyrgra" bandaríkjamanna að nokkurra annarra. Ef ekki verður gripið til þess að eyða öllum þessum vopnum er veruleg hætta á að einhver vitleysingurinn nái að sprengja.  Þá er bara spurningin: Hvar?

Haukur Nikulásson, 22.2.2007 kl. 07:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Lára Stefánsdóttir
Lára Stefánsdóttir

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband