Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Dómstóll götunnar

Þessi lífsreynsla er hræðileg fyrir þennan dreng. Þessa dagana eru menn dæmdir af alþýðu manna og má af þessu máli sjá hverjar afleiðingarnar eru. Saklaust fólk geldur fyrir það sem það kom hvergi nærri. Vonandi sjá menn hversu stórhættulegt það er að haga sér með þessum hætti og nauðsynlegt að dómstólar sjái um refsingar og úrræði. Dómstóll götunnar dæmir ekki endilega rétt.


mbl.is Grímuklæddir menn sitja um heimili hjá saklausum pilti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

500 þúsund manns!

Það má margt segja um þessa frétt en mig langar að gera að umræðuefni vinnuframlag landsmanna og þess sem Max Keiser segir: "Íslendingar eru evrópskt land með bandarískan vinnumarkað". Eftir þessu að dæma þá má leysa töluvert mikið atvinnuleysi með því að menn vinni einungis eina vinnu og einnig væri kostur að menn gætu notið meiri tíma með fjölskyldu sinni og vinum.

Eins vel og þetta hljómar þá er vandi okkar sá að við þurfum að greiða lán sem hækka stöðugt og því dugar varla ein vinna fyrir marga. Það hlýtur að vera freistandi fyrir marga að sækja sér vinnu í öðrum löndum þar sem launin eru e.t.v. í sama gjaldmiðli og lánið sem er verið að greiða.

Eins og staðan er þá eru lán heimilanna óviðráðanleg fyrir mjög marga og í óviðráðanlegri stöðu er fátt eitt hægt að gera annað en vinna meira. Það er nauðsynlegt fyrir okkur að hafa yfirsýn yfir hversu margir eru í þessari stöðu og hvernig er hægt að bregðast við því. Þeir sem geta ekki og munu ekki geta staðið í skilum þurfa að fá fyrirgreiðslu því það er töluverður munur á að standa eignalaus uppi en að standa uppi eignalaus með svo miklar skuldir að þær verða aldrei greiddar.

Ég hef ekki djúpstæða þekkingu á lagaumhverfi gjaldþrota en tel að í núverandi ástandi þurfi að skoða hvort ekki þurfi tímabundið að vinna á annan hátt með gjaldþrot en gert hefur verið hingað til.  


mbl.is Trúðu á kraftaverkahagkerfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykjavíkurfundur orðinn þjóðin?

Menn eru nokkuð brattir að lýsa því yfir að þeir séu þjóðin og viti nákvæmlega hvað þjóðin vill. Hvaða yfirlýsingargleði er þetta? Svo lýsa þeir yfir því að þingið starfi ekki í nafni lýðræðis en telja sig sjálfa gta tekið sér slíkt vald. Ég kaus þetta fólk ekki í lýðræðislegum kosningum til að vera fulltrúa fyrir mig á bíófundi í Reykjavík. Ég tók þó þátt í að kjósa til Alþingis þó ég kysi ekki alla flokka eða í öllum kjördæmum.  

Það er glórulaust að fara í kosningar núna, þar með fáum við ekki lánafyrirgreiðslu frá IMF, ekki verður hægt að koma málum í réttan farveg og þar með verður öll sú vinna sem þó hefur farið fram handónýt. Ég má ekki til þess hugsa. Nauðsynlegt er að sýna skynsemi þó tímarnir séu erfiðir.

Svo frábið ég mér að æst fólk á borgarafundum taki sér þann rétt að lýsa því yfir að þeir tali fyrir þjóðina. Þeir hafa ekkert umboð til þess. Þeir endurspegla sína skoðun og margir aðrir geta haft sömu skoðun sem er annað mál.


mbl.is „Þetta er þjóðin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þekkingarauður

Miklir möguleikar felast í endurnýjanlegri orku á Íslandi sem hægt er að nýta til uppbyggingar í landinu á jákvæðan hátt. Sérþekking íslenskra vísindamanna er þekkingarauður sem hægt er að veita öðrum þjóðum sem hingað til hafa ekki nýtt jarðhita á sama hátt og við höfum gert. Þekkingareign er ekki nægilega skilgreind sem verðmæti og hér á landi hefur skort reynslu og þekkingu á að selja ráðgjöf og þekkingarþjónustu. Við erum vanari sölu á innpökkuðum varningi en því að selja það sem við vitum.

Ég tel að það sé gríðarlega eftirsóknarvert verkefni að skrá þekkingarauðinn í ríkari mæli og búa hann til útflutnings t.d. í stað þess að fólk flytji úr landi með þá þekkingu sem það hefur.

Nokkuð hefur borið á einhæfri umræðu þegar kemur að endurnýjanlegum orkugjöfum eins og jarðhitaorku. Slíkt stafar e.t.v. af því að ekki hafa boðist nægilega fjölbreyttir kostir til að nýta orkuna. En það er mikilvægt að hafa augun opin fyrir slíku.


mbl.is Íslensk orka í brennidepli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öflug ræða Ingibjargar Sólrúnar

Augljóst var á flokksstjórnarfundi í dag að formaður Samfylkingarinnar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er vön að standa við stjórnvölinn og missir ekki fókus þó tímar séu erfiðir. Hún hefur þann undraverða hæfileika að geta horft markvisst á þau verkefni sem þarf að vinna að og lætur ekki úlfaþyt þeyta sér af leið.

Stundum finnst mér eins og menn horfi á þann vanda sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir sem tölvuleik og þeir vilji bara ýta á takka til að komast í næsta borð eða endurræsa leikinn og allt sem þar hafði gerst hverfi snarlega og allt verði eins og fyrr. Sumir telja að það gerist með kosningum, aðrir með því að skipta um fólk og þá á að gerast einhver hókus pókus og ekkert hefur gerst.

Það þarf sterk bein og einarðan vilja til að vinna þau verkefni sem þjóðin þarf á að halda. Hafa yfirsýn yfir fjölmarga málaflokka til þess að taka tillit til fjölþættra verkefna því lífið er ekki svo einfalt að eitthvað eitt hjálpi öllum. Við þá vinnu er mikilvægt að þeir sem vilja berjast fyrir jöfnuði í samfélaginu séu við stjórnvölinn.

Ég veit að með Ingibjörgu Sólrúnu við forystu fyrir liði Samfylkingarinnar í ríkisstjórn verður allt gert til að vinna eins vel úr hlutunum og mögulegt er sem gerir það að verkum að þrátt fyrir að tímar séu erfiðir þá veit ég að það er gott fólk úr liði okkar í Samfylkingunni sem mun gera allt sem mögulegt er í þeirri stöðu sem við erum í.

Það er enginn valkostur í lífinu að gefast upp.


mbl.is Áfallastjórnuninni lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinur minn - sperrileggurinn

Ég þekki ekki glögglega til deilna framsóknarmanna en orðfærið og aðferðirnar eru ólíkar aðferðum margra annarra. Þeir ráðast ekki fram með sóðakjöftum og gífuryrðum heldur takast á með fangbrögðum orða sem minna helst á gamla góða glímu. Þeir taka "stigið", kalla hver annan vin og beita síðan öllum ráðum að fella hinn með orðræðu um hver er sannari framsóknarmaður.

Sperrileggur er frábært orð sem ég hef ekki séð brúkað lengi og gaman að sjá það í fangbrögðum stjórnmálamanna.

 


mbl.is „Bjarni móðgar framsóknarmenn"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað eru margir Herðir í Suðurkjördæmi?

Bjarni Harðarson hættir og þá kemur Helga Sigrún Harðardóttir á þing. Guðni Ágústsson hættir og þá kemur Eygló Þóra Harðardóttir á þing og nýr varaþingmaður kjördæmisins er þá Lilja Hrund Harðardóttir. Hverjir eru þessir Herðir?
mbl.is Eygló næst á lista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spámaðurinn Steingrímur

Það er varla viðtal við Steingrím J. Sigfússon þessa dagana öðruvísi en hann ítreki að hann hafi sagt hlutina fyrir. Ég velti fyrir mér hvort það þurfi ekki að fara að taka saman hvað þessi glöggi spámaður segir og biðja hann að spá fyrir 2009 í heildina?

Annars væri fróðlegt að heyra hvað annað hann hefur um þetta mál að segja en tjá vondar tilfinningar og eldri spádóma. Taldi hann að ekki ætti að standa við skuldbindingar við fólk af því það væri af erlendum uppruna búsett í öðru landi? Eða hvað snýst þessi vonda tilfinning um?


mbl.is Vond tilfinning fyrir þessu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hamingjan horfin?

Nú sitjum við hér saman
Sársaukafull í framan
Það sem að þarf
Er hamingja sem hvarf
Svo það verði aftur gaman


mbl.is Ætlaði ekki að vera fyndinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ein tunna er um 159 lítrar

Ég hef aldrei skilið fyrirbærið "tunna af olíu" svo ég fór að leita að upplýsingum til að skilja málið. Þetta fann ég en mun nú ekki leggja líf mitt að veði að þetta sé allt satt og rétt þannig að leiðréttingar eru vel þegnar.

Ein tunna er 159 lítrar af óunninni vöru sem skapar 20 gallon af bensíni og 7 lítra af dísilolíu. Eitt gallon er 3.78541178 lítrar. Þá er sumsé hægt að fá tilbúna 75,7 lítra af bensíni og 26 lítra af díselolíu. Þetta er skv. barnafræðslu á vef orkuupplýsingarstofu bandaríkjastjórnar.

Segjum að bensínið kosti 155 krónur og díselolían 185 krónur þá gerir þetta 11.733 + 4.810 = 16.543 og segjum að gengið á dollar sé 137 krónur þá gerir þetta um 120 bandaríkjadali. þar með ríflega tvöfaldast verðmætið frá því að tunnan er á heimsmarkaði þar til hún er tilbúin vara sem dælt er á bílana okkar.

Hmmm, hvað ætli verðið sé í Bandaríkjunum miðað við þetta?


mbl.is Olíuverð hríðlækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Lára Stefánsdóttir
Lára Stefánsdóttir

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband