Leita í fréttum mbl.is

Mikill kraftur á landsfundi

Það er gaman á landsfundi og sérstaklega að hitta flokksfélaga frá landinu öllu, styrkja tengsl og mynda ný. Það var frábært að fá norrænu leiðtoga jafnaðarmanna frá Danmörku og Svíþjóð sem mæltist báðum afar vel á fundinum. Hér má sjá umfjöllun um það á vef sænsku jafnaðarmannanna.

Ingibjörg Sólrún var fagleg og stefnuföst og frábært að hafa slíkan leiðtoga og lokavinnan við stefnumálin gengur einstaklega vel og verður traust að hafa þau með í kosningabaráttunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Nikulásson

Ég tel það veikleika hjá Sollu að vera að fá kvenleiðtogana til landsins. Það lítur út eins og að hún þurfi á sérstakri hjálp að halda til að tryggja sér áframhaldandi stuðning. Af hverju var ekki boðið til landsins einhverjum karlkyns leiðtogum demókrata?

Þessi endalausi femíniski tónn hjá Sollu er einn mínusinn hjá henni sem okkur (sumum) karlmönnum hugnast bara ekki. Við teljum að jafnrétti hafi verið náð og ef konur hafa hæfileika þá sé ekkert þeim til fyrirstöðu, bæði þú og Solla eru bara einföld dæmi um það!

Haukur Nikulásson, 14.4.2007 kl. 12:59

2 identicon

Haukur,

Það er alveg á hreinu að kallar eins og þú eru nátttröll sem eru hraðahindranir á jafnréttisbrautinni. Líttu bara í kringum þig í þitt eigið umhverfi. Hvernig hafa laun t.d. verið hjá körlum og konum á þínum vinnustöðum í gegnum tíðina? Við karlarnir höfum passað okkar hvað laun og stjórnunarstöður varðar, en það hefur þótt góður kostur að hafa konu nr. 2

Eins er það með konur í pólitík. Það þykir flott að hafa konur sem "skraut" á listum stjórnmálaflokkana, en um leið og þær fara að segja of mikið og vilja of mikið (vera t.d. leiðtogar) þá hvín og syngur í nátttröllunum. Konur eiga bara að vera þægar og fallegar og þá er allt í góðu.

Brattur (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 15:11

3 Smámynd: Lára Stefánsdóttir

Ég held að það hafi verið fengur að fá Monu og Helle til landsins, ræður þeirra voru frábærar og gaman að fá spegil frá Svíþjóð og Danmörku inn í umræðuna á þinginu. Við höfum áður haft karla frá systurflokkum okkar á Norðurlöndunum á landsfundi þannig að það var ágætt að fá konurnar núna;-)

Lára Stefánsdóttir, 14.4.2007 kl. 15:47

4 Smámynd: Haukur Nikulásson

Brattur, þú ert of fljótur að dæma mig sem náttröll/hraðahindrun og gerir mér því erfitt fyrir að ætla rökræða við þig. Þú hefur enga hugmynd um hvaða innihald ég ber og ég frábið að ÞÚ gerir mér upp skoðanir sem ég er einfær um að viðra sjálfur. Viðraðu þínar og þá verður kannski tekið eitthvert mark á því sem þú segir.

Lára, ég get alveg unnt ykkur þess að hafa haldið glæsilegan landsfund með tignum gestum. Til hamingju með það.

Ég tel þó að stjórnarkjör á þessum tímapunkti sé rangt svona rétt fyrir kosningarnar. Ef einhver ágreiningur hefði verið uppi um forystuna hefði það getað komið illa út í aðdraganda kosninganna. Flokkarnir eiga að vera með formannskjör hið minnsta árið áður en kosningar fara fram til að halda sér heilum í kosningabaráttu og bjóða ekki ágreiningnum um fólk heim. Þetta kom þó ekki að sök núna.

Haukur Nikulásson, 15.4.2007 kl. 09:36

5 Smámynd: Lára Stefánsdóttir

Kosning forystu mánuði fyrir kosningar getur svo sannarlega verið áhættusöm það er hárrétt Haukur en hinsvegar er gott að halda landsfund á þessum tímapunkti. Það var gott að hitta félagana, ræða málin og skerpa línurnar. Það er heilmikil vinna og ferðalög að vera í framboði í Norðausturkjördæmi og fólkið mjög dreift um kjördæmið. Það var því afar gott að hittast á einum og sama staðnum.

Lára Stefánsdóttir, 15.4.2007 kl. 16:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Lára Stefánsdóttir
Lára Stefánsdóttir

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband